Skálmöld Skálmöld - Niðavellir

Niðavellir, náhvítur máninn skín
Dvergahellir, dulúð þér villir sýn
Sindradætur, synir og börnin öll

vetrarnætur, verma þau klettafjöll

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa
Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa

Galdrastafir, grafnir í stóran stein
dvergagrafir, dysjar og gömul bein
Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal
Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal

Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa
Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa

Trónir á mergi tinnugler
tindar úr bergi háir
Sindri og Hergill halla sér
hér sofa dvergar gráir

Heyr, mín kæra hefðarfrú
hér er gott að sofa
Á sig taka náðir nú
niðahjón og börnin þrjú

Þegar heyrist þrumugnýr
Þór við skulum lofa
Okkur geymir hellir hlýr
hér er gott að sofa

Náinn syngur næturljóð
núna sefur dvergaþjóð